Tækniprestakallið: Lýðræði og Frelsi í Evrópusambandinu

Innrás Rússneska Sambandsríkisins inn í Úkraínu breytti heimsmynd þeirri sem við flest ólumst upp við í einni svipan. Í þessari bók leiðir höfundur lesandann inn í flókið landslag alþjóðastjórnmála með útgangspunkt í stríðinu sem nú geisar í Úkraínu og rannsakar hvaða áhrif það hefur haft á alþjóðasamfélagið og ekki síst á Evrópusambandið.

Þetta er rannsókn á lýðræði, valdi og frelsi í alþjóðlegu samhengi sem nú er á barmi stórfelldra breytinga. Hvar liggur valdið í raun og veru þegar á hólminn er komið, og hversu mikið frelsi hafa kjörnir fulltrúar þjóða gagnvart flóknu regluverki og nafnlausum sérfræðinganefndum?

Bókin rekur þróunina á bak við stofnsáttmála ESB og skoðar hvernig risamál á borð við fullveldi, regluverk og lýðræðislegt frelsi snerta daglegt líf almennings og sjálfstæði einstakra ríkja í skugga stríðsátaka, umhverfismála og stafrænna byltinga. En hún gengur einnig lengra og spyr grundvallarspurninga: Hvað er lýðræði? Hver hefur vald til að skilgreina það? Og samkvæmt hvaða mælikvarða eru sum stjórnkerfi talin lýðræðisleg en önnur ekki?

Tækniprestakallið er viðamikið og krefjandi rit sem hvetur til gagnrýninnar umræðu um framtíð lýðræðis, frelsis og fullveldis. Beitt og upplýsandi lesning fyrir alla þá sem vilja skilja þau öfl, hugmyndir og valdalög sem móta stjórnmál og átök samtímans.

Hvað gerist þegar vald færist frá kjörnum fulltrúum til tæknikrata, sérfræðinga og embættismanna? Tækniprestakallið rannsakar lýðræði, frelsi og vald innan Evrópusambandsins með stríðið í Úkraínu sem útgangspunkt og spyr grundvallarspurningar: Hver hefur vald til að skilgreina hvað telst lýðræði?